Jæja ein vinnuhelgin búin og líka svona leiðinlegur. Eins
og laugardagarnir eru vanalega fljótir að líða og skemmtilegir, því
flestir sem mig þekkja vita að ég fýla mig best í action. Þá var
þessi geðveikt lengi að líða, og gekk allt á afturfótunum.,
missti tvær safaflöskur í gólfið og sprungu þær, papriku kassinn
gaf sig þegar ég var að fara að fylla á paprikuna og skoppaði hún
um öll gólf. Eins gekk allt svo hægt fyrir sig einhvað, gleymdi að
leysa greyið af í nammilandinu. Með úber bömmer eftir
það. Þetta var svona dagur sem maður bíður bara eftir að
líði. En svo maður reyni að vera jákvæður svona dagar
gera hina dagana bara en betri. En annars fórum við litla
fjölskyldan í mat heim til konu tengdapabba. Ji hvað hún á fallegt
heimili og flottar mublur. Ég hélt ekki vatni yfir
húsgögnunum. Hihhi jebb Maja geðveikt heimili. Við verðum
að fara að kíkja í húsgagnabúðirnar... En við
fengum voða fínan mat allskonar fiskrétti enda tengdapabbi jafn
góður kokkur og kallinn minn. Að öðru ég sagði við Dóra þegar
hann sótti mig í vinnuna í gær. Veistu ég er búin að bíða eftir að
þessi dagur sé búin og hugsa um bjór og pepsi max í allan
dag. Dóri bauðst til að hoppa inn í Nóatún og kaupa pepsi max
sem ég þáði en það var ekki til kalt pepsi max, og hann
vissi að ég myndi ekki drekka það heit, svo hann sleppti
að kaupa það. Og ég ákvað að sættast við vatn þegar ég kæmi
til tengdapabba.Svo kom ég til tengdapabba og þá spyr
krúttið hann tengdapabbi "Disa viltu bjór eða pepsi max "ég keypti
pepsi max handa þér. Ég ekki lengi,að þiggja bæði bjórin og
pepsiið. Dóri gat ekki annað en brosað. Hehe ég varð svo glöð
með bjórin og pepsiið. En viti men mín varð bara hífuð á þesum eina
bjór.
Dagurinn í dag byrjaði með því að ég vaknaði með snúllunni minn,
gerði svona helstu heimilstörfin. Jabb það gerir þau víst engin
fyrir mann. Svo spjallaði ég við Rakel vínkonu á msn, og ég var
bara komin út í huganum. búnar að skipuleggja alla dagana
nánast.... klikkaðar. Og við einu sinni ekki búin að kaupa
flugmiðana enþá. Svo rölti ég með kalli og barni út í bakarí,
Viktoría frekar óheppin og datt nokkrum sinnum á leiðinni. Og sér
aðeins á kinninni á henni eftir göngutúrinn. Svo fórum við að skoða
hestana og lömbin. Og enduðum svo í smáranum. ég verslaði mér
buxur, og nýtt andlit. Alveg lýgilegt hvað maður verður latur að
fara í búðir eða að versla þegar maður er vinnanndi við þetta allan
daginn. Komum heim og kallin eldaði dýrindis grillmáltið.
hey Ragna ég keypti mér svona buxur eins og þú nema brúnar.
En annars er ég í fríi á morgun 1 maí .......... Stelpur ég
hugsa til ykkar þegar ég vakna um 10 leytið...híhí múhhhhaha.
Já og Rakel. Talandi um óheppni.
Ég er búin að vera frekar óheppin í gegn um tíðina. En ekkert
alverlegt samt.
En hér koma nokkrir punktar......
Það lak góflið í Fordinum okkar þegar við keyptum hann, og
þurfti ég að fara með hann 3 svar í viðgerð því það var gat á
gólfinu og kom vond lykt.
Þegar við lögðum parketið á íbúðina. þá fengum við vitlaust
parket afhent að hluta til.
Við keyptum spegil á baðið og og þegar Dóri var búin að líma
hann upp þá hrundi hann í gólfið og brotnaði í milljón mola og
rispaði alla baðherbergishurðina ( ps vorum búin að búa í íbúðinni
í mánuð)
Ein morguninn vaknaði ég við að Dóri kemur in til mín go
segjir mér að eldhúsið sé á floti. Þá hafði píparinn gleymt
að setja einhverja hosu á einhvað rör. Parketlistar
skemmdust.
Þegar við vorum ný búin að fá afhent byrjaði ofn að leka í
stofunni
Þeir koa að flota svalirnar hjá okkur og gera það mjög illa,
gólfið allt skakkt og slettur upp á veggjum. Eins og Bubbi byggjir
hafi verið að verki.
Þegar við fórum út í fyrra sumar.Fengum við vitlausa íbúði
alltof lítil. Það var reyndar lagað á fimmta degi. Og fengum við
þá með fínni íbúðum á hótelinu.
Þegar ég og Gugga komum til þín ( Rakel) þá vorum
við sjö tíma á leiðinni í stað þess að vera
fjóra tíma og var okkur hent út úr lestinni.
Einhverstaðar í rassgggggati. En vel þess virði og var þetta bara
upplifelsi eftir á en ég hélt hreinlega að þessi lestaferð
yrði mitt síðasta. Og tala nú ekki um þegar Gugga kom með
appelsæinu brandarann sinn . Dauði hreinn og beinn dauði.
Svo ef ég tek Ikea ferðirnar mínar þarna inn
í.
Vantaði bak í kommóðuna mína.
Fékk brot og brot af hillusmatæðunni minni,því hún seldist
alltaf upp.
svo þegar hún loksins var komin og komin oinn í stofu þá var hún
gölluð.
Keypti ljós í Ikea gallað.
Ofnin í nýju íbúðinni bilaði þegar við vorum búin að búa hér í 2
vikur.
Þegar ég keypti sófan og búin að borga hann þá komumst við að
því að áklæðið á hann er ekki til. það tók tvær vikur að fá
það.
Búin að kaupa þrennar gallaðar rimlagardínur og hef
alltaf þurft að fara og ná í varahluti í þær. Svo Elskan hann Dóri
geti lagað þær.
Keypti jakka á Viktoríu og þvoði hann einu sinni og
litirnir smituðust allir.
keypti buxur á Viktoríu og smellan dettur af þegar ég klæði han
í fyrsta skipti í þær.
Keypti vanish blettahreinsir sem náði blettunum úr og ögn betur
en það komu bara klórblettir í staðini í þrennar flíkur af
Viktoríu.
Fengum gallaða potta frá Look en fengum reyndar nýja.
Kaupi Leðurjakkan úti og rennulásinn bilar.
Jæja held að þetta sé komið gott. Þetta eru samt bara
smámunir
En annars er ég mjög hepinn að öðru leyti.
á heilbrigða fjöskyldu. er sjálf með góða heilsu. á fallegt
heimili sem má reyndar alltaf má bæta.
Á yndislegan kall sem vill allt fyrir mig gera. á yndislega
dóttuE og svo má ekki gleyma mömmunni minni og vinunum.
Nóg bull í bili
þangað til næst